Vefkökustefna Bóki
Bóki hugbúnaður ehf. (hér eftir vísað til „Bóki" eða „fyrirtækisins") notar vefkökur í þeim tilgangi að stuðla að virkni, greina notkun og bæta upplifun notenda á vefsíðum (hér eftir vísað til „vefsvæði") sem eru í eigu eða rekstri hjá fyrirtækinu.
1. Hvað eru vefkökur?
Vefkaka er lítil textaskrá sem er vistuð á tölvu eða öðrum tækjum þegar vefsvæði er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskrá er geymd í vefvafra notenda og vefurinn þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þannig er hægt að senda ákveðnar upplýsingar í vafra notenda sem getur auðveldað aðgang að ýmsum aðgerðum.
Vefkökur eru annað hvort fyrstu aðila vefkökur, sem senda eingöngu upplýsingar til þjónustuveitanda (í þessu tilviki Bóki), eða þriðju aðila, sem eru tilkomnar vegna þjónustu sem þjónustuveitandi notar og sendir upplýsingar til vefsvæðis í eigu þriðja aðila. Viðkomandi aðilar kunna einnig að tengja þær upplýsingar við aðrar sem notendur hafa látið þeim í té, eða upplýsingar sem þeir hafa safnað með notkun notenda á þeirra þjónustu.
2. Notkun Bóki hugbúnaður ehf. á vefkökum
Þegar notandi heimsækir vefsvæði í fyrsta skipti birtist borði með stillingum fótspora. Þar hefur notandi kost á að velja eða hafna notkun á valfrjálsum vefkökum; hagnýtar kökur og markaðssetningar kökur.
Þær vefkökur sem fyrirtækið notar og í hvaða tilgangi eru eftirfarandi:
Virkni kökur
Virkni kökur eru nauðsynlegar til þess að vefsvæði virki eins og ætlast er til. Þessar kökur gera kleift að muna stillingar notenda, forútfylla form, tryggja öryggi og veita grundvallarþjónustu vefsvæðisins. Þessar kökur eru alltaf virkar og ekki er hægt að slökkva á þeim í stillingum fótspora.
Hagnýtar kökur
Hagnýtar kökur eru notaðar til að bæta þjónustu fyrirtækisins með því að veita innsýn í notkun vefsvæða, muna stillingar notenda, forútfylla form o.fl. Gögnin eru notuð til að vinna tölfræðilegar upplýsingar varðandi umferð um vefsvæði og hámarka notendaupplifun með því að aðlaga vefsvæði að þörfum hvers og eins. Notkun á hagnýtum kökum byggir á samþykki notenda.
Markaðssetningar kökur
Markaðssetningar kökur (þriðju aðila vefkökur, m.a. hjá Facebook) eru notaðar í markaðslegum tilgangi til að bæta upplifun notenda. Það er gert með því að nota upplýsingar um aðgerðir notenda á netinu, hvort sem á vefsvæðum fyrirtækisins eða annarra þjónustuveitanda. Þannig er hægt að aðlaga vefsvæði enn betur að þörfum notenda og birta þeim sérsniðin þjónustuskilaboð. Notkun þessara kaka gera fyrirtækinu einnig kleift að fylgjast með árangri auglýsinga og annarrar markaðsstarfsemi á netinu. Notkun á markaðssetningar kökum byggir á samþykki notenda.
3. Stillingar á notkun vefkaka
Notendur geta alltaf breytt stillingu fótspora á vefsvæði hér fyrir neðan. Slíkar breytingar geta þó dregið úr notagildi vefsvæðis.
4. Meðferð á persónuupplýsingum
Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við gildandi ákvæði laga og reglna um persónuververnd. Nánar um hvernig Bóki vinnur persónuupplýsingar er að finna í persónuverndaryfirlýsingu fyrirtækisins.